Skáldskapur, raunveruleiki, grín og harmur fléttast saman í heimildarmyndinni You Can See Everything. Áhorfendum er kippt með í þriggja klukkutíma þeysireið sem fjallar um furðulegan heim Elizabeth Holmes, takmörk heimildarmyndaformsins og hvernig við getum aldrei séð allt sama hvað við fáum að sjá mikið. Svikahrappurinn Holmes er verðugur andstæðingur fyrir hinn brellna Nathan Fielder og glíma þeirra getur af sér marglaga, ögrandi og einstakt listaverk.