Um fjórum klukkustundum eftir neyðartilkynninguna frá fiskiskipinu Jökli ÞH mætti TF-GRÓ, þyrla Landhelgisgæslunnar, á svæðið. Flugmaður sem var ein þeirra sex sem voru í áhöfninni um borð í TF-GRÓ í gær við björgunina segist aldrei hafa efast um að þyrlusveitin myndi brjóta reglur til að komast á vettvang.