Meirihlutinn í Reykjavík vill hækka verð á stökum sundmiða fyrir fullorðna úr 1.500 krónum í 2.800 krónur. Verði nýja gjaldskráin samþykkt tekur hún gildi 8. desember. Borgin lækkaði í vor verð á árskorti fullorðinna úr 48 þúsund krónum í 34 þúsund krónur. Bjarni Guðjónsson, formaður íþrótta- og útilífsráðs Reykjavíkur, segir að hækkunin muni fyrst og fremst ná til ferðmanna. Langflestir borgarbúar sem sæki laugarnar séu með sundkort.