Úrslitin á heimsmeistaramótinu í matreiðslu voru kunngerð á verðlaunahátíð í Luxexpo-höllinni í Lúxemborg rétt í þessu og það ætlaði allt um koll að keyra þegar sigurliðin voru lesin upp. Svíar sigruðu keppnina og Norðmenn hrepptu annað sætið. Ísland hafnaði í fjórða sæti á HM í matreiðslu sem er besti árangurliðsins frá upphafi.