Úrslitin á heimsmeistaramótinu í matreiðslu voru kunngerð á verðlaunahátíð í Luxexpo-höllinni í Lúxemborg rétt í þessu og það ætlaði allt um koll að keyra þegar sigurliðin voru lesin upp. Svíar sigruðu keppnina og Norðmenn hrepptu annað sætið. Því miður komst Ísland ekki á verðlaunapall að þessu sinni þrátt fyrir glæsilega frammistöðu á mótinu.