Íslenska kokkalandsliðið bætti sinn besta árangur á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg þegar það náði fjórða sæti. Svíar eru heimsmeistarar, Norðmenn fengu silfur og Singapúrar bronsið. Íslenska liðið fékk gull í báðum keppnisgreinum og var hársbreidd frá verðlaunapalli.