Íslenska kokkalandsliðið náði ekki sæti á verðlaunapalli á heimsmeistaramótinu í matreiðslu þrátt fyrir að hljóta gull í báðum keppnisgreinum. Svíþjóð varð heimsmeistari, Noregur hafnaði í öðru sæti og Singapúr í þriðja og Ísland í fjórða. Þetta var tilkynnt rétt í þessu á verðlaunahátíð mótsins í Luxexpo-höllinni í Lúxemborg.