Daily Mail segir frá því hvernig Manchester United leitaði til gagnagreinanda innan félagsins til að sýna fram á að Alexander Isak, sóknarmaður Liverpool, hefði ekki átt neinn möguleika að ná til boltans í atvikinu þegar Leny Yoro fékk rautt á sunnudaginn. Yoro fékk rautt spjald gegn Liverpool þar sem dómarinn Sam Barrott taldi hann hafa rænt upplögðu marktækifæri. VAR studdi ákvörðunina og taldi ekki um augljós mistök að ræða. United áfrýjaði og vann málið svo leikbann Yoro var látið falla niður. Nú hefur verið opinberað hvaða sönnunargögn United lagði fram til aganefndarinnar. United sendi inn þrjú háskerpumyndskeið af umræddu atviki, þar sem notuð voru mörg mismunandi sjónarhorn. Þá var sent inn atvik frá því fyrr á tímabilinu þegar Pascal Struijk, leikmaður Brighton, fékk rautt spjald