Forsvarsmenn Nvidia hafa ákveðið að hætta að selja háþróuðustu tölvuflögur fyrirtækisins til Suðaustur-Asíu. Er það liður í að reyna að koma í veg fyrir að Kínverjar komi höndum yfir bandaríska tækni. Þá hefur litið dagsins ljós að háttsettur yfirmaður hjá fyrirtækinu er giftur konu sem starfaði hjá fyrirtæki sem talið er að hafi smyglað tölvuflögum Nvidia til Kína.