Fiskiskipið Jökull sem sökk austur af landinu í gær hafði tvívegis strandað frá því það kom til landsins árið 2021. Þá hafði komið upp eldur um borð og nokkrum sinnum verið greint frá bilunum. Skipið var þrjátíu ára gamalt en hafði verið endurnýjað að hluta á síðustu árum. Orsök skipsskaðans liggur ekki fyrir.