Unnið er að því að greina hvert markmið tölvuþrjóta sem réðust á kerfi Reykjavíkurborgar var. Enn eru sum þjónustukerfi borgarinnar óaðgengileg. Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi vegna stöðu mála. Forstöðumaður hjá netöryggissveitinni CERT-IS segir alvarleika netárása hafa stigmagnast til muna.