Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa veitt fyrirtækinu SpaceX, sem er í eigu Elons Musk auðugasta manns heims, leyfi til að setja allt að milljón gervihnetti á braut um jörðu. Slíkt myndi fimmtíufalda fjölda gervihnatta en leyfið var veitt án nokkurs konar rannsóknar á mögulegum áhrifum þessa fjölda gervihnatta á sporbraut.