Aðstæður voru erfiðar þegar þyrla Landhelgisgæslunnar hífði sautján skipverja upp úr sjó 100 kílómetra austur af landinu í gær. Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur birt myndir og myndbönd sem tekin voru um borð í björgunarskipinu Hafbjörgu. Það var eitt þriggja björgunarskipa sem send voru á vettvang. Landsbjörg Ölduhæð náði allt að fimm metrum og treysta þurfti á að fiskiskip lýstu upp sjóinn...