Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Mosfelling í tólf mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot. Mosfellingurinn ók þrívegis sviptur ökurétti á rúmu ári, þar af tvisvar undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Í dóminum, sem féll 25. nóvember, áréttaði dómurinn ævilanga sviptingu ökuréttar hans. Lögregla gaf Mosfellingnum merki um að stöðva bifreið sína á Baugshlíð í Mosfellsbæ 27. febrúar 2025. Þrátt...