Ebóla dreifist enn hratt meðal fólks í Austur-Kongó. Vitað er til þess að 12.021 hafi smitast og þar af hafa 5.904 dáið, samkvæmt tölum yfirvalda í Kongó. Sérfræðingar telja líklegt að báðar tölur ættu í raun að vera mun hærri. Gífurlegt álag er á heilbrigðisstarfsfólki á svæðinu þar sem veiran er í mestri dreifingu og hefur ítrekað verið ráðist á það.