Hlutabréf Alvotech hafa fallið um meira en ellefu prósent í Kauphöllinni í morgun eftir að bandarískur dómstóll féllst á kröfu Janssen um bráðabirgðalögbann við markaðssetningu á hliðstæðu félagsins við gigtarlyfið Simponi, sem hefur verið talin einn helsti vaxtarbroddur Alvotech á næstu árum. Niðurstaðan er þvert á yfirlýstar væntingar stjórnenda Alvotech og gæti aukið á óvissu um tekjuvöxt og fjármögnunarþörf félagsins á næsta ári.