Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir það aldrei hafa gerst áður að átt hafi verið í samskiptum við menn í sjónum líkt og gerst hafi í gær eftir að Jökull ÞH299 sökk. Hann segir það hafa skipt sköpum að hafa átt í beinu sambandi við mennina þar sem þeir börðust fyrir lífi sínu í fjóra tíma í sjónum. Dómsmálaráðherra segist sannfærð um að þetta hafi haft úrslitaáhrif.