Aðeins ein björgunarþyrla var tiltæk þegar Jökull ÞH sökk 60 sjómílum austur af landinu í gærkvöldi. Á blaðamannafundi forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og forstjóra Landhelgisgæslunnar í morgun kom fram að flugstjóri þyrlunnar, TF-GRÓ, hefði þurft að brjóta reglur í tilraun til að bjarga 17 manna áhöfninni sem komin var í sjóinn í björgunargöllum. Því var lýst á fundinum hvernig áhöfnin, björgunaraðilar og...