Logi Karlsson hefur verið ráðinn forstjóri Símans ehf. og tekur við starfinu 1. desember næstkomandi. María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása, hefur jafnframt stýrt Símanum frá því að fjarskiptareksturinn var færður í sérstakt dótturfélag í júlí. Samkvæmt tilkynningu um ráðninguna hefur Logi verið framkvæmdastjóri tækniþróunar hjá Símanum frá árinu 2023 og samhliða því gegnt starfi framkvæmdastjóra upplýsingatækni hjá Ásum. Logi hóf...