Á laugardögum æfa börn með fötlun körfubolta hjá Vestra á Ísafirði. Heiðrún Tryggvadóttir, formaður barna- og unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Vestra, segir æfingarnar komnar til að vera. Nú langar þau að komast með krakkana á mót og sjá fleiri íþróttafélög bjóða fötluðum börnum að vera með.