Fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk um sextíu sjómílur austur af Glettingi síðdegis í gær og voru allir áhafnarmeðlimir fluttir með þyrlu á Egilsstaði. Skipstjóri lýsti yfir neyðarástandi laust eftir klukkan 17. Ekki hefur verið greint frá líðan skipverja en forstjóri Landhelgisgæslunnar sagði von á frekari upplýsingum um hádegisbil í dag.