Þrjátíu og einn létust í eldsvoða í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, í dag. Olíuflutningabíll valt á fjölfarinni umferðargötu í Al-Warrack-hverfinu í Giza, sem varð til þess að eldur kviknaði í bílnum. Eldurinn var gríðarmikill og umlukti nærliggjandi bíla sem umbreyttust fljótt í brunarústir.