Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS hafa ákveðið að virkja viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða vegna fjölgunar gervigreindarárása á tölvukerfi. * Netárás var gerð á hluta tölvukerfa Reykjavíkurborgar í dag. Fleiri hafa tilkynnt um netárásir. * Forstöðumaður CERT-IS staðfestir að það sé til skoðunar hvort tölvuárásin hafi meðal annars beinst að greiðslumiðlun hérlendis. * Heimildir fréttastofu herma að tölvuþrjótar hafi komist yfir lykilorð og inn í gagnagrunn hjá Reykjavíkurborg. Leiða megi líkur að því að talsvert af gögnum sé undir. * Bókunarkerfi Bláa lónsins varð líka fyrir netárás. * Sviðstjóri almannavarna segir ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af öryggi almennings að svo stöddu. * Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að yfirfara var