Nítján ára drengur lést eftir að hafa verið skotinn í höfuðið þar sem hann var í tjaldútilegu ásamt vinum sínum nærri Blackwater-á í Flórída en lögreglan á svæðinu rannsakar nú andlátið. Faðir drengsins segir son sinn ekki hafa látist vegna „óheppilegs veiðislyss“ heldur hafi einhver vísvitandi skotið í átt að tjaldinu.