Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS hafa ákveðið að virkja viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða vegna fjölgunar gervigreindarárása á tölvukerfi. * Netárás var gerð á hluta tölvukerfa Reykjavíkurborgar í dag. Fleiri fyrirtæki kunna að hafa orðið fyrir atlögum. * Heimildir fréttastofu herma að tölvuþrjótar hafi komist yfir lykilorð og inn í gagnagrunn hjá Reykjavíkurborg. Leiða megi líkur að því að talsvert af gögnum sé undir. * Sviðstjóri almannavarna segir ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af öryggi almennings að svo stöddu. * Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að yfirfara varnir og hættumat.