Á hverri klukkustund er gert ráð fyrir að fimm konur séu myrtar af maka eða nánum ættingja árið 2025. Samkvæmt nýrri skýrslu UN Women um kvennamorð hefur tíðni þeirra lækkað hægar en tíðni manndrápa á heimsvísu. Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi og fer fram Ljósaganga UN Women og samhliða því hefst árlegt sextán daga átak gegn kynbundu ofbeldi.