Alvarleg netöryggisatvik hafa komið upp síðustu daga sem urðu til þess að ákveðið var að lýsa yfir óvissustigi almannavarna og virkja viðbragðsáætlun vegna verndunar svonefndra ómissandi upplýsingainnviða. Ekki er útilokað að óprúttnir aðilar hafi fengið aðgang að viðkvæmum gögnum í nýju árásunum.