Stjórnvöld ætla að efla viðbúnað og eftirlit Landhelgisgæslu Íslands og embættis ríkislögreglustjóra. Sérstök áhersla verður lögð á að efla eftirlit með drónum og kaupa sérútbúnar bifreiðar til að styrkja viðbragðsgetu sérsveitar ríkislögreglustjóra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra undirrituðu samninga þess efnis við Landhelgisgæsluna og embætti ríkislögreglustjóra í morgun. Undirritunin fór fram um borð í varðskipinu Þór...