Í greinargerð kemur fram að samkvæmt mati Fjarskiptastofu og annarra eftirlitsstjórnvalda árið 2025 skorti talsverðan fjölda mikilvægra innviða fullnægjandi stjórnunarkerfi fyrir net- og upplýsingaöryggi. Misjafnlega hafi gengið að framfylgja lögunum og erfitt hafi verið að manna og fjármagna eftirlitið.