Farandfólk streymir frá meginlandi Afríku til Kanaríeyja og var met sett í gær, samkvæmt yfirvöldum á Spáni. Nærri því tvö þúsund manns komu til Kanaríeyja í gær og hafa þeir aldrei verið fleiri en málefni farand- og flóttafólks er talið að muni vega þungt í huga kjósenda seinna í vikunni.