Bandaríski áhrifavaldurinn Christie Miller tilkynnti fylgjendum sínum í myndbandi á samfélagsmiðlum að hún væri látin eftir baráttu við fjórða stigs brjóstakrabbamein. Miller missti eiginmann sinn úr briskrabbameini fyrir rúmu ári síðan, hefur verið opinská um sína eigin krabbameinsbaráttu og sagðist spennt að hitta eiginmanninn í handanlífinu.