Stormur um allt land á morgun

Veðurstofan varar við austan hvassviðri eða stormi um land allt á morgun og aðfaranótt föstudags. Austfirðingar og íbúar á Suðausturlandi eiga einnig von á mikilli rigningu með hættu á flóðum og samgöngutruflunum.Vindur getur farið yfir 30 og 35 metra á sekúndu í þekktum veðravítum víða um land. Rigningin suðaustantil getur valdið vatnavöxtum í ám og lækjum.Áður en að þessu kemur er þó gul viðvörun á miðhálendinu frá klukkan sex til ellefu í kvöld. Þar verður hvassviðri eða stormur. Einnig verða hvassir suðaustan vindstrengir á suðvestanverðu landinu síðdegis, svo sem undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Varasamar aðstæður geta skapast fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Það byrjar að hellirigna á Austfjörðum og Suðausturlandi strax í fyrramálið. Þar taka gular við
Stormur um allt land á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar