Leit stendur yfir að á þriðja tug manna sem taldir eru hafa orðið innlyksa í ólöglegri gullnámu á Indónesíu eftir að vatn flæddi inn í hana. Að minnsta kosti þrjú lík hafa fundist og er talið að 23 séu enn í námunni. Ellefu munu hafa komist út þegar vatn byrjaði að flæða þar inn.