Í lok síðustu viku var danskt hveiti innkallað vegna gruns um að myglueitur gæti reynst yfir mörkum. Hveitið var flutt inn og selt undir þremur vörumerkjum og með best fyrir dagsetningar í september. Það var því útrunnið og gera má ráð fyrir að töluverður fjöldi hafi neytt þess.Í fréttaskýringaþættinum Þetta helst var fjallað um matvælaöryggi og innkallanir matvæla sem hafa aukist nokkuð á síðustu árum. Um fjórðungur innkallana er vegna ófullnægjandi merkinga á matvöru og 37% snýr að því að aðskotaefni eða aðskotahlutur finnst í matnum.Innköllun matvæla hefur aukist nokkuð á síðustu árum. Deildarstjóri matvæladeildar Matvælastofnunar segir fyrirtæki í auknum mæli vilja byrgja brunninn og ganga lengra í innköllunum en áður. INNKALLANIR 64 ÞAÐ SEM AF ER ÁRI Óvenju mikið hefur verið um inn