Holur hafa myndast mjög víða í vegum og hvetur Vegagerðin fólk til að aka varlega. Vegskemmdirnar eru raktar til veðuraðstæðna undanfarið. Hringvegurinn er ósléttur við Tungufljót í Melasveit. Þar er unnið að viðgerð á ræsi og getur verið steinkast af þeim sökum. Hámarkshraði hefur verið lækkaður niður í 30 kílómetra á klukkustund.Fylgdarakstur verður um Hvalfjarðargöng næstu tvær nætur vegna þrifa og viðhalds.Vegskemmdir. Mynd úr safni.RÚV / Guðmundur Bergkvist