Lögreglumenn verða ítrekað fyrir hótunum og ofbeldi í störfum sínum, líkt og fram kom í Kveik í gær. 130 lögreglumenn kvörtuðu til nefndar um eftirlit með lögreglu yfir vanköntum á rannsóknum embættis héraðssaksóknara í slíkum málum. Ein þeirra er Hildigunnur Einarsdóttir, lögregluþjónn. „Mér var hótað að mér yrði nauðgað. Sem lögreglukonur fá oft,“ segir Hildigunnur. „Þetta er ekki sama samfélagið og var, sko.“Hún segir svör Karls Inga Vilbergssonar varahéraðssaksóknara við gagnrýni lögreglumanna fáránleg. „Þetta eru bara galin svör,“ segir Hildigunnur. „Að við séum að kæra of mikið. Eins og við eigum að láta þetta yfir okkur ganga.“Lögreglumenn óttist að vera eltir heim og um öryggi sitt og fjölskyldna sinna. „Ég myndi ekki segja að lögreglumönnum finnist þeir vera öryggir, eins og þeim