Framkvæmdastjóri markaða Arion banka telur að hægt væri að ná fram hallalausum rekstri ríkissjóðs með því að nýta eignir ríkisins betur í stað þess að hækka skatta. Þannig gæti Landsbankinn til að mynda greitt ríkinu fimmtán milljarða króna á ári hverju aukalega í arð.