Réðust til atlögu og frelsuðu alla gíslana

Kólumbískir sérsveitarmenn réðust í nótt inn í matvöruverslun þar sem vopnaðir menn héldu 20 manns í gíslingu. Abelardo de la Espriella, forseti Kólumbíu, sagði að allir gíslarnir hefðu verið frelsaðir og að einn gíslatökumannanna hefði verið felldur.Gíslatakan hófst þegar vopnaðir menn reyndu að ræna brynvarinn bíl. Þær áætlanir runnu út í sandinn þegar lögregla mætti á staðinn. Ræningjarnir flúðu inn í matvöruverslun og hnepptu viðstadda í gíslingu.Gíslatökumennirnir létu nokkra lausa á næstu klukkutímum. Þeirra á meðal voru fimm aldraðar konur. Gíslatakan dróst á langinn og á endanum voru 20 enn í haldi ræningjanna. Forsetinn mætti á staðinn og fylgdist með. Sérsveit lögreglunnar réðist þá til inngöngu. Að sögn forsetans gengu þær aðgerðir vel upp. Öllum gíslunum var bjargað. Lögregla f
Réðust til atlögu og frelsuðu alla gíslana

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar