Icelandair ætlar að hefja beint flug frá Akureyri til Tenerife næsta haust, vikulega á þriðjudögum frá 19. október til 18. apríl vorið eftir. Ætla mætti að það félli í góðan jarðveg hjá heimamönnum sem jafnan kalla eftir auknu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll. En svo var ekki. Ákvörðun Icelandair virðist falla í grýttan jarðveg og hefur talsvert verið gagnrýnd. ICELANDAIR EKKI AÐ SVARA KALLI HEIMAMANNA FYRIR NORÐAN Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, segir það að mörgu leyti skiljanlegt. „Já, ég held að ástæðan sé sú að þarna er Icelandair ekki að svara kalli heimamanna. Það hefur verið mjög skýrt kall héðan frá svæðinu til Icelandair um að koma inn með Köben, eða Kaupmannahafnarflugið, sem hefur sýnt sig að er eftirspurn eftir. Við höfum haft Kaupman