Blæs í dag en hvessir hressilega á morgun

Útlit er fyrir nokkuð hvasst veður í dag en á morgun bætir mjög í vind og þá má búast við suðaustan- og austanhvassviðri með vætusömu veðri. Á Suðaustur- og Austurlandi má búast við úrhellisrigningu á morgun.Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á miðhálendinu vegna suðaustanstorms frá því um kvöldmat og fram undir miðnætti.Veðurspáin er svohljóðandi:Suðaustlæg átt í dag, víða 8-15 m/s. Rigning austanlands og við vesturströndina, annars þurrt að mestu. Hiti yfirleitt 1 til 7 stig. Suðaustan 13-20 suðvestantil síðdegis og fer að rigna sunnan- og vestanlands, en dregur úr vindi og úrkomu á þeim slóðum í kvöld.Gengur í suðaustan og austan 15-23 á morgun, en hægari vestanlands fram á seinnipartinn. Rigning með köflum, en talsverð úrkoma á Suðaustur- og Austurlandi. Hlýnar heldur.
Blæs í dag en hvessir hressilega á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar