Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu íbúa húss við Miðtún í Reykjavík um að fá aukagjöld vegna sorphirðu felld niður. Málið sneri að hinu svokallaða viðbótarlosunargjaldi, eða skrefagjaldi, sem Reykjavíkurborg leggur á fasteignir þar sem sorptunnur eru í meira en fimmtán metra fjarlægð frá þeim stað þar sem sorphirðubíll stansar.