Textílverkamenn fá langþráða launahækkun

Verkamenn í fataiðnaði í Bangladess fengu í dag samþykkta 36% hækkun á lágmarkslaunum. Starfsfólkið fór í verkfall 15. nóvember og hefur mótmælt vikum saman. Fjöldi fataverksmiðja í Bangladess þurfti að loka vegna verkfallsins.Starfsfólkið krafðist þess upphaflega að fá 30 þúsund taka í lágmarksmánaðarlaun, en það er jafnvirði um 30 þúsund íslenskra króna. Lágmarksmánaðarlaun eru nú 12.500 taka sem starfsfólk hefur sagt að dugi ekki til að sjá fyrir sér vegna þess að framfærslukostnaður sé orðinn svo hár.Að endingu samþykktu starfsmenn fataiðnaðarins að lágmarkslaunin yrðu 17.000 taka. Launahækkunin tekur gildi í janúar á næsta ári.Textíliðnaðurinn í Bangladess framleiðir fatnað fyrir milljónir neytenda í Evrópu og Norður-Ameríku, þar á meðal fyrir verslanir á borð við H&M, Primark, Uniqlo
Textílverkamenn fá langþráða launahækkun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar