26 námuverkamenn eru fastir í ólöglegri gullnámu á eyjunni Jövu í Indónesíu eftir að úrhellisrigning olli því að nálæg á flæddi yfir bakka sína á mánudag. Yfirvöld fengu þó ekki tilkynningu um atvikið fyrr en í gær.11 verkamenn náðu að yfirgefa námuna áður en vatnið flæddi inn en lögreglan á Vestur-Jövu vinnur að því að komast að mönnunum sem urðu eftir. Aðgerðir hafa hins vegar gengið hægt vegna mikils rigningarveðurs og þess hve aðgengi að námunni er þröngt.Slys í námum eru algeng í landinu, sem er einstaklega ríkt af ýmsum málmum. Það á þó sérstaklega við um ólöglegar námur þar sem öryggisreglur eru slakar eða jafnvel hunsaðar.Námuslys eru algeng í Indónesíu. Hér er manni bjargað úr ólöglegri gullnámu sem hrundi árið 2019. Átta námuverkamenn létust í því slysi.EPA / STR