Thomas Markle formlega ákærður fyrir vörslu barnakláms

Thomas Markle var í gær formlega ákærður af kviðdómi í Kaliforníu fyrir tvö brot sem varða vörslu barnakláms. Búist er við því að hann verði leiddur fyrir dómara við alríkisdómstól í Los Angeles á næstu vikum.Í ákærunni kemur fram að Markle hafi átt í fórum sínum filmur sem sýndu kynferðisofbeldi gagnvart börnum, þar á meðal að minnsta kosti eina mynd af barni sem var ekki komið á kynþroskaskeið.Saksóknarar sem reka málið gegn Markle segja að alríkislögreglan hafi lagt hald á tugi mynda á skyggnum, eða slides-myndum, á filmum og í bókum. Að minnsta kosti tvær myndir sýna Markle sjálfan ásamt börnum sem eru annaðhvort nakin eða fáklædd.Upp komst um barnaníðsefnið þegar Thomas Markle yngri fann það á fyrra heimili föður síns á Filippseyjum. Hann tilkynnti fundinn til lögreglunnar, bæði á Fil
Thomas Markle formlega ákærður fyrir vörslu barnakláms

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar