Pattstaða komin upp í gíslatöku í stórmarkaði

Vopnaðir menn tóku um 30 manns í gíslingu í stórmarkaði í borginni Cartagena í Kólumbíu í gær.Pattstaða hefur staðið yfir í margar klukkustundir en lögregla, herlið og sérsveitir umkringdu bygginguna og tóku allt rafmagn af svæðinu. Þá eru leyniskyttur í viðbragðsstöðu á nærliggjandi húsþökum.Á myndum sem kólumbískir fjölmiðlar hafa dreift má sjá grímuklædda menn vopnaða rifflum standa við hlið gísla sem virðast vera á hnjánum á verslunargólfinu. YFIR 20 ENN ÞÁ Í HALDI MANNANNA Að sögn yfirvalda á staðnum höfðu mennirnir gert tilraun til að ræna brynvarinn bíl en þegar lögregla nálgaðist vettvanginn flúðu þeir inn í kjörbúðina og tóku fólkið sem þar var inni í gíslingu.Nokkrir gíslar hafa síðan verið látnir lausir, þar af fimm aldraðar konur. Enn eru þó yfir 20 manns í haldi mannanna.Ca
Pattstaða komin upp í gíslatöku í stórmarkaði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar