Það hefur þekkst á hjúkrunarheimilum í Frakklandi og víðar að fólk geti haft gæludýr hjá sér. Tilraunaverkefni stendur yfir á gjörgæsludeild spítala í París sem gengur út á að gæludýr sjúklinga séu velkomin í heimsókn. Kíkt er á þau áður en þau fara inn og það þarf að sýna bólusetningarvottorð.Pascale Rolland fékk hundinn sinn í heimsókn á dögunum. „Við fengum okkur lúr saman í gær. Þegar ég vaknaði fann ég hvergi til. Mér fannst leitt að hún gæti ekki verið hér og sofið hjá mér. Næturnar yrðu örugglega friðsælli og án martraða,“ segir hún.Einn læknanna, Antoine Monsel, segir skýr merki um að nærvera dýranna lini sársauka, kvíða og þunglyndi. „Við höfum meira að segja mælt ákveðin streituhormón í munnvatni, sem lækka umtalsvert innan fimm mínútna við samneyti við gæludýr.“