Meira en 200 nágrannar alþjóðaflugvallarins við Kaupmannahöfn mótmæltu fyrirhugaðri stækkun á flugvellinum fyrir utan ráðhúsið í Tårnby í dag. Einhverjir voru með mótmælaskilti og aðrir með andlitsgrímur eða heyrnarhlífar til að sýna áhyggjur sínar af loft- og hljóðmengun frá flugvellinum.Þrátt fyrir mikla andstöðu íbúa ákvað meirihluti sveitarstjórnar Tårnby að veita leyfi fyrir stækkun flugvallarins, þar á meðal 15 nýjum flugvélastæðum.Til stendur að stækka Kaupmannahafnarflugvöll umtalsvert. Áætlanir gera ráð fyrir að flugvöllurinn geti tekið á móti 55 milljónum farþega árlega að framkvæmdum loknum, samanborið við þær 34,5 milljónir farþega sem búist er við að fari um flugvöllinn í ár.Íbúar í grennd við flugvöllinn mótmæla vegna þess að þeir óttast aukna mengun og hávaða. „Við viljum næ