Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar, segir heilbrigðisráðherra benda á Heilbrigðisstofnun Norðurlands þegar hann leitar svara um hvort endurhæfingarsundlaug á Sauðárkróki verði opnuð á nýjan leik. Sveitarfélagið er tilbúið að gefa 90% afslátt af gjaldskrá hitaveitunnar til þess að halda lauginni opinni.„Þar með töldum við að við værum að leggja okkar lóð á vogarskálarnar við að halda þessari þjónustu gangandi. Samt sem áður hefur laugin ekki verið opnuð aftur og við höfum ekki fengið staðfestingu á að svo verði,“ segir Magnús.Hann telur rekstrarkostnað laugarinnar vera óverulegan í stóra samhenginu og að fólk bíði eftir að nota laugina. „Þarna stendur þessi glæsilega sundlaug með fyrsta flokks aðstöðu tóm. Þeir eru með aðgengi að niðurgreiddu heitu vatni og það eru svo margir aðilar