Þremur kalkúnum var stolið af ræktendum í Garðinum í Suðurnesjabæ um helgina. Sandra Björk Ingadóttir og Kristín Einarsdóttir áttu fuglana og hafa verið með þá í ræktun síðustu þrjú ár. Þær eru líka með sex hænur en þær voru alveg látnar vera.„Ég keypti lítið og vel notað fjárhús fyrir nokkrum árum hér við þorpið og höfum við vinkonurnar verið með kalkúnana og hænurnar þar og haft óskaplega gaman af. Mér og okkur finnst að sjálfsögðu alveg galið að kalkúnunum hafi verið stolið. Okkur þætti svo sannarlega vænt um að vita hver eða hverjir tóku þá og við erum ekkert endilega að biðja um að þeim sé skilað. Þó að þetta séu kalkúnar þá þykir okkur svo vænt um þá og myndum gjarnan vilja frétta hvar þeir eru. Það má lauma að okkur skilaboðum í gegnum Messenger á Facebook en við erum báðar þar,” se