Fjögur koma til greina í forstjórastólinn

Fjórir umsækjendur koma til greina í starf forstjóra Landsvirkjunar eftir starfsviðtöl síðustu vikna. Viðskiptablaðið greinir frá.Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins koma þau Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Kristín Linda Árnadóttir, starfandi forstjóri Landsvirkjunar, Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun, og Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar, til greina.Umsóknarfrestur um starfið rann út 1. nóvember en starfið var auglýst 15. október. Stjórn Landsvirkjunar sér um ráðninguna með aðstoð ráðningar- og ráðgjafafyrirtækisins Hagvangs.„Við gerum ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir fyrir jól,“ hefur Viðskiptablaðið eftir Brynju Baldursdóttur stjórnarformanni Landsvirkjunar.Hörður Arnarson, fyrrverandi forstjóri Landsvirkj
Fjögur koma til greina í forstjórastólinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar